Langt síðan síðast, ég held bara að ég hafi ekki bloggað frá því áður en að ég fór í prófatörn og það er nú orðið helvíti langt síðan! Ég sit hérna inni með smá timburmenni og veit ekki hvað ég á að gera af mér og veðrið vill ekki ákveða sig hvort það eigi að vera sól eða úrhellis rigning. Huumm, ætli maður skrifi ekki bara eins og eina færslu svona upp á gamanið! Þar sem óhemju mikið og skemmtilegt hefur drifið á daga okkar þá hef ég bara ákveðið að hafa smá myndasýningu. Það er líka hægt að fullyrða að myndir eru miklu skemmtilegri en innantóm orð!
Byrjum gleðina:
Mamma og pabbi komu í heimsókn og það gaman og huggulegt!
Fórum á lokahóf í skólanum hennar Erlu þann 23. júní
Sun Helen, Erla og Live
Vigdís og Erla
Ég fór í matarboð til Annette við dýrustu götu Danmerkur, Strandvejen
Ótrulega nett, svo sigldu bara snekkjurnar þarna fyrir utan og maður horfði bara yfir til Svíþjóðar. Svona lítill kofi eins og þessi ætti að kosta 2-300 milljónir!
Philip og Cille
Philip, Kasper og Einar
Það var trallað og spilaðir drykkjuleikir
Roskilde '07
GLEÐI.....GLEÐI.....GLEÐI
Fallega blómatjaldið okkar og sagið góða sem drakk alla drulluna í sig!
Jebb sólin lét líka á sér kræla og já það var gras fyrstu dagana (á afmörkuðum svæðum)
En aftur á móti var þetta algengari sjón!
Kasper og ég í góðu fjöri
Erla og Óðinn á góðri stund
Við og Einar Haralds
Einar Haralds nýi besti vinur okkar, Kasper vildi samt bara kalla hann ...pungur
Linda, Eygló, Erla og Dani
Úfff þetta voru margar myndir og ég vona að þið njótið. Það hefur nú meira gerst hjá okkur en ég þoli ómögulega meira í bili og svo er ég líka að fara borða dýrindis pizzu frá Ciao Ciao!
Ég vildi bara henda inn smá kveðju þar sem vid erum ad fara til Roskilde í nótt væntanlega og komum ekkert aftur fyrr en eftir viku! Þar sem við erum heldur ekkert búin ad skrifa um okkur og hvað er að gerast þá er kannski kominn tími til þess... pæla í að stikkla bara á stóru því ég hef ekki tíma til þess að skrifa mikið, þarf að fara að kaupa mér gúmmístígvél fyrir hátíðina (spáð rigningu allan tímann!!)
Einar kláraði prófum 8 júní
Einar og Jessý tengdó komu í heimsókn vikuna 12 - 19 júní og það var frábært að fá þau og þvílíkur lúksus því við okkur var boðið út að borða næstum öll kvöldin;)
Við Einar erum komin með vinnu SAMAN hehe já smá lúðalegt en samt sweet. Við erum að þrífa stigaganga í blokkum og það er vægarsagt alveg HUNDleiðinlegt og kemur í ljós hvort við þraukum sumarið þarna!
Ég kláraði skólann 23. júní og allli voru geggjað leiðir og fóru að hágrenja þegar átti að kveðja alla, nema ég!! Vá ég er kannski svona köld en mér fannst þetta bara ekkert rosalega sorglegt að hætta sko, jú það er búið að vera frábært í vetur en líka alveg kominn tími til að hætta og byrja á einhverju nýju (sem í mínu tilviki er LHÍ jeiiii !)
Einar byrjaði semsagt í seinustu viku í vinnunni og ég byrjaði núna seinasta mánudag...vinnan er frá 7 á morgnanna til 3 á daginn sem er bara fínn vinnutími en verst bara hvað maður verður skuggalega þreyttur eitthvað eftir á !
Við erum nefnilega ekkert bara að skúra og svoleiðis heldur að DAUÐHREINSA stigagangana....þrífa veggi og handrið og glugga og bara allt, skrúbba gólf og taka af gamalt bón til að setja nýtt ..og þetta er sko hörku púl alveg !
OG svo er einn yfirmaðurinn sem er Serbi og heitir Sveto, hehe já, og hann er alveg eins og einhver karakter úr bíómynd og hann talar bara dönsku með svona "rússa" hreim, ef einhver man eftir rússanum í Armagedon þá talar hann alveg eins og geggjað erfitt að skilja hann!! Hann er fyndin en frekar súr samt ....
Roskilde byrjar núna á sunnudaginn 1. júlí og stendur til 8. júlí og ekkert nema frábært og geggjað við það, við hlökkum sko mest til að sjá Arcade Fire sem einmitt eru á fimmtudaginn kl 5 á arena sviðinu svona ykkur til gagns og gamans !
jájá svo förum við yfir til finnlands þann 9. ágúst og fljúgum þaðan heim 15. ágúst, þannig að Hulda ég kem beint heim í afmæliskaffi ;) ..p.s love you too kjútípæ!:*
já og hana nú verð að fara að drífa mig í stígvélaleiðangur því allt lokar kl. 4 hérna úti!!
ohh spassdískt kann ekki að taka þessa punkta af
Einar biður að heilsa öllum og JÁ LINDA ER Á LEIÐINNI TIL MÍN JIBBÍÍÍ..:D
Ég vil nú bara byrja á því að óska Víði frænda og Eyrúnu TIL HAMINGJU MEÐ ÓLETTUNA!:D Alveg kominn tími á þetta, og amma og afi örugglega kát yfir því að fá viðbót í barnabarnasafnið, langt síðan að það gerðist seinast!!
Haldiði að það sé ekki bara kominn JÚNÍ! Hvað er það nú eiginlega?? Er ég sú eina sem finnst tíminn líða alveg fáránlega hratt, svona eins og þegar madur er í löngu flugi og sofnar og vaknar og það er bara 20 mín. í ad flugvélin lendi! Hmm elska það, en ég veit ekki alveg hvort ég elski það í þessu tilviki, þ.e.a.s. að það fari að líða undir lok þessa danmerkurævintýris. Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt að ég sé búin að búa hérna síðan í janúar soldið súrrealíkst! Eða hvað finnst ykkur, erum við búin að vera lengi í burtu??
Nú eru líka bara 3 vikur eftir af skólanum mínum, spes. Seinasta föstudag hélt hópurinn minn eða minn "k-gruppe" þvílíka veislu með Hawaii þema. Á borðum var þvílíkt flottur grillmatur með öllu tilheyrandi og sátu allir úti þar sem við vorum búin að setja dúka á borð, útiljós, kerti og alls konar skraut útum allt, og svo var hlustað á Beach Boys og allir með blómakransa og í hawaii skyrtum!!! Það var alveg frábært en leiðinlegst er að þar sem þetta var okkar veisla þurftum við að ganga frá öllu og þá er ég að meina ÖLLU skúra og allt á sinn stað!! Sem er ekkert sérstaklega skemmtilegt kl. 12 á miðnætti og allir að bíða eftir manni til þess að fara í bæinn....EN ótrúlega gott kvöld og allir ánægðir!
Ég sótti um vinnu á mánudaginn á the Laundromat Café, kallinn ætlaði að hringja í mig í gær eða í dag ..er ekki enn búin að hringja hmm vona samt að hann geri það, ágætt að geta sótt um vinnu á íslensku!!;) http://www.thelaundromatcafe.com/ Annars ætlar Einar ekkert að byrja að leita fyrr en hann er búin í prófum, sem er núna á föstudaginn!! Jeiiiiiiiiiiii seigi ég nú bara.....:)
Við fengum góðar fréttir í fyrradag, en Jessý og Einar tengdó ætla að koma í heimsókn í næstu viku og ætla að vera í viku. Það verður gaman að fá gesti aftur og sýna þeim um bæinn, reyndar eru þau tvö engir nýgræðingar hvað varðar borgina svo ég held þau geti nú reddað sér án leiðsagnar okkar! Þau þekkja jafnvel borgina betur en við gerum ..;) Eeen við getum allavega heillað þau uppúr skónum með þvílíkum listum og göldrum í eldamennsku, þar sem við erum orðin svo ótrúlega klár í þeim málum skiljiði!! Kemur í ljós hvað við göldrum fram fyrir þau...
Svo er það bara Roskilde festival 5-8 júlí og ég barasta get ekki beðið þangað til vá það verður svooo gaman! Við ætlum að gista með Halldóri og vinum hans, en annars er hálfur skólinn minn að fara líka svo það verður alveg fullt af fólki til að leika við!:) ef einhver er í vafa hvort honum/henni langi þá segi ég bara óheppin því það er eignlega uppselt !!!! HAHAHHAHA...þið getið samt tékkað á http://www.roskilde-festival.dk svona ykkur til dægradvalar !
LHÍ byrjar svo þann 20. ágúst svo það er nú bara ekkert svo langt til að við komum heim og svo ætlum við að reyna að kíkja yfir til Finnland og heimsækja Siggu og Hilmar og sætu strákana þeirra. Þau eru nefnilega að flytja þangað núna í júní og ekki leiðinlegt að kíkja á nýja heimilið þeirra áður en við fötum svo heim. Ég er orðin alveg ótrúlega spennt fyrir skólanum, get bara ekki beðið en samt soldið stressuð að fara að byrja í HÁSKÓLA!:S vá hljómar svo fullorðinslega og svo ætla ég að reyna að fjárfesta í bíl, hvernig sem ég fer að því !! Kemur í ljós kemur í ljós krakkar mínir....
jæja nú alveg er ég búin með kvótann, við heyrumst seinna eda sjáumst :)
Mamma mín hringdi í mig áðan og sagðist hafa ROSALEGAR FRÉTTIR að færa!!! Hmm.. hvað í ósköpunum er í gangi? Ég útilokaði það samt strax að eitthvað slæmt hafi komið upp á eins og einhver hefði dáið eða eitthvað því mamma hljómaði svo kát! Gvuð er hún búin að gifta sig, hugsaði ég svo, þegar hún spurði mig svo hvort ég væri sitjandi!! HA? Hvað er í gangi kona, spýttu þessu útúr þér;) ....og viti menn.....
...ÉG ER KOMIN INN Í LHÍ!!!!! :D
JEIJEIJEI ég er svoo kát að ég veit ekki hvernig ég á að haga mér eiginlega !! úff..haha ég byrjaði bara að hlæja og svo þegar ég skelti á mömmu fór ég og hoppaði í rúminu mínu! Annars langaði mig bara að hringja í alla sem ég þekki og láta þá vita, em það kostar svolítið marga peninga svo ég læt duga msn og bloggfærslu!
Þessar fréttir koma sko heldur betur á góðum tíma þar sem að ég er búin að vera undanfarið í þvílíkri tilvistarkreppu eitthvað, mér finnst svo rosalega óþægilegt að vita ekki hvað ég er að fara að gera og að geta ekki planað komandi mánuði nákvæmlega !! Höndla það bara einfaldlega ekki....Já ég veit, ég er skrítin! Alveg búin að vera á haus með að reyna að finna upp á einhverju sem mig langar til þess að gera í vetur og hugsa um hvað mig langar að gera á móti því hvað sem skynsamlegt (þ.e.a.s. ferðalög vs. vinnu!) Svakalega ruglandi að verða fullorðinn greynilega! Það var alltaf talað um hvað það væri stórt skref að fara frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla og hvað það væri mikil tímamót í lífi manns....sko mér finnst það töluvert meiri tímamót að klára framhaldsskóla og þurfa svo að ákveða hvert stefnir og maður þarf að ákveða vel! Pís of keik að klára grunnskóla ! ..iisss foreldrar, þetta þurfiði að bæta úr, ég var einganvegin undirbúin fyrir svona tilvistarkreppu haha ...en ég veit samt um marga sem að líður svona þegar framhaldsskóla er lokið! Það eru svo óteljandi leiðir semt hægt er að velja og þvílík pressa eitthvað að velja rétt því áður en maður veit af er maður bara orðin of gamall fyrir eitthvað rugl og þá verður maður að flytja að heimann og eignast krakka og hund og einbýlishús og jeppa!! Ekki alveg tilbúin fyrir svoleiðis pakka, nei takk!!!! (Mamma andar léttar!!)
Jæja ég er hætt þessum pælingum, því nú veit ég nákvæmlega hvað ég er að fara að gera næstu mánuðu OG NÆSTU 3 ÁR !!:D Til ykkar hinna sem eruð í sömu kreppunni þá skil ég ykkur fullkomlega !
Voða lítið að frétta annars, Einar er á fullu að læra fyrir prófin og fyrsta er 30. maí og svo er hann búinn 8. júní! OG ÉG ER EKKI BÚIN FYRR EN 23. JÚNÍ sem er svindl, ojj ekki gaman að vera í skóla á sumrin! Við erum ekki ennþá búin að finna okkur vinnu sem er ekki alveg nógu gott, við þurfum alvel bráðnauðsynlega að fara að gera eitthvað í þessu. Við sóttum um skúringar hjá einhverri konu sem Helena og Erna vinkonur Einars höfðu unnið hjá hérna úti, en hún vildi ekkert með okkur hafa svo við verðum að leita eitthvað annað!
Annars var Einar þvílíkt búinn að lofa einhverri svakalegri reynslusögu frá "the runway" og ætli ég verði ekki að koma með smá innslag um það!:) Jamm það var semsagt stelpa sem er með mér í Borups sem var að fara að halda tískusýningu með öðrum ungum hönnuðum og spurði nokkrar stelpur úr skólanum, og mig, hvort við gætum verið módel. Já bara ekkert mál, voða gaman allavega að hún spurði mig þar sem að ég hef ALDREI tekið þátt í tískusýningu áður!:) Svo mætti ég um 3 leitið á laugardaginn og fór strax í förðun og hárgreiðslu og það tók alveg meira en klukkutíma held ég!
Svo fengum við smá kennslu um hvernig við áttum að labba og hafa hendurnar og á hvernig hraða og svona...svov ar okkur sýnt hvernig við áttum að labba um húsið, því það var á 2 hæðum og það voru þvílíkar serimóniur hvar við áttum að standa og bíða þarna og fara þarna og telja upp á 7 ölkassa (einn ölkassi, tveir ölkassar, þrír ölkassar.....) jamm það tók nú alveg hellings tíma og svo var æfing í fötunum og við sýndum allar 3 flíkur þannig að við þurftum að vera SVAKA fljótar að skipta um á milli!! Jæja svo þegar allir voru búnir að ná þessu þá fengum við pásu og fengum að borða og slöppuðum aðeins af, það tekur svo á að vera módel skiljiði!!;) Svo átti að úthluta skónum....ÚLLALLA SEGI ÉG NÚ BARA, 10-12 cm háir skór og vá ég þurfti sko að æfa mig að labba á þessum stultum maður !! Úff mæli ekki með að þið stelpur kaupið svona háa skó ÁIII! En mér tókst ú alveg ágætlega held ég að skraunglast um á þessum fínu skóm og sýningin heppnaðist bara alveg ótrúlega vel! Einar mætti að sjálfsögðu til að horfa á skvísuna og svo voru nokkrar stelpur úr skólanum sem voru að horfa á og ótrúlega gaman að finna fyrir því að það var einvher sem þekkti mann þegar maður gekk um gólfin með titrandi hné!!! Þetta var nefnilega ekki svona týpískur "runway" heldur áttum við að labba á gólfinu þannig að áhorfendurnir voru alveg upp við okkur, og svo labba í "L" utan um miðjuna á kaffihúsinu. Á endanum á gólfinu, þar sem við stiltum okkur upp, hafði Einar plantað sér svo að ég stoppaði bara nokkrum cm frá honum og pósaði hehe :D Þarna uppi á annari hæð, var fysta stoppistöð ..þar áttum við að pósa og bíða eftir stelpunum niðri...og svona til að segja ykkur þá seldist hvíta peysan eftir sýninguna (allt mér að þakka;)!!)
Þarna vorum við að pósa, á stað nr. 2 (var sko í sjúklega þröngum leggings og mér leið eins og cat woman eða eitthvað þegar ég var svo komin á hælana!)
Og þarna var ég beint fyrir framan Einar á þriðju stoppistöð! Svo labbaði ég alveg hinum megin og Einar náði engri mynd þar..
Ótrúlega spes tilfinning að láta alla glápa á sig svona frá toppi til táar, og það var ekkert leiðinlegt sko....sérstaklega þegar maður er í flottum fötum og búin að æfa sig svona vel á þessum líka háu skóm (sem voru by the way gull skór!!) Jæja, þetta leið alveg furðufljótt og svo þegar showið var búið langaði okkur öllum bara til þess að sýna meira !! Heheh ..já þetta var alveg ótrúega gaman að prófa þetta og um leið og ég kem heim ætla ég að skrá mig hjá Eskimó models!!! ;) ...djók...
Smá vidjóbrot ...í byrjun er ég uppi lengst til vinstri og já þið ættuð að fatta restina!;) vær så god!
Úff, nú nennir ég alls ekki að skrifa meira en ég spyr bara ER ENGINN SEM ÆTLAR Á HRÓASKELDU EÐA ???????????????????????????????? Okkur Einari vantar ferðafélaga og ég er ekki sátt með það hvrsu fáir ætla að fara !!
Við kíktum í matarboð í gærkvöldi sem Cristina, besta vinkona Cille, og bróðir hennar buðu til. Þau búa saman upp á Nørrebro kjörsamlega hliðina á því þar sem að Ungdomshúsið var og gat maður séð það út um gluggann hjá þeim. Þau voru semsagt í miðjum óróanum í byrjun mars. Þau buðu til pizzuveislu þar sem tilraunamennskan sveif yfir vötnum. Margar skemmtilegar gerðir litu dagsins ljós og til að taka dæmi þá smökkuðum við pizzu með eggjum og baconi, pizzu með salati, ferskum tómötum og ferskum mozzarella osti og pizzu með skinku, pestó og gulum baunum sem klárlega bar af. Eftir matinn var ákveðið að spila og fyrir valinu varð Trivial Pursuit, jebb það var skondið og erfitt. Þetta spil er nú nógu erfitt á eigin tungumáli og hvað þá að berjast við það á dönsku. Eitthvað sem var líklega það skondnasta við spilið var það að þau safna ekki kökum heldur OSTUM. ....þessir Danir!
Annars er ekki mikið af okkur að frétta, maður er dottinn í próflestur og það verður heldur betur gaman þegar sá tími er liðinn. Annað af mér að frétta eða öllu heldur nebbanum mínum er það að hann er allur að koma til. Mikil bólga hefur lekið úr honum og við það hefur myndast vænt glóðurauga þar með lítur maður ekki út eins og fílamaður lengur eða jafvel gúbbífiskur heldur meira svona eins og slagsmálahundur. Hann er nú samt ennþá heldur aumur greyjið en hann mun koma til.
Ég var í ágætu bloggstuði en svo fór ég út í smá körfubolta og datt úr öllu bloggstuði þannig að ég nenni eiginlega ekki að babbla eitthvað hérna. Eigum við að segja að í næstu færslu þá muni Erla blogga um catwalk reynslu sína ...núna í þriðja og síðasta skiptið sem að ég lofa þessu og ef hún mun ekki gera þetta núna þá er þetta bara dautt og þið getið sleppt þessu og þá get ég farið að snúa mér að einhverju öðru en að lofa þessu í hverju bloggi! ...þannig að nú er brjáluð pressa á að Erla komi með magnaða færslu um þetta annars var öll þessi eftirvænting til einskis!
líklega ein sú slakast færsla sem ég hef skrifað ....aaaah það var nú samt soldið gaman að þessu með trivial og ostinn!
Byrja á því leiðinlega, fúla og pirrandi. Ég var semsagt að spila fótbolta í gær með liðinu hans Philips, það er allt gott og blessað, alltaf gaman að sprikla. En þegar soldið var liðið á fyrri hálfleikinn þá fengum við horn og ég náttúrulega inní tilbúinn að skalla í netið ....neineinei það vildi ekki betur til en það að ég fór upp í skallaeinvígi og litli, sæti, krúttlegi nebbinn minn lennti í feita, stóra, ljóta hnakkanum á baunanum. Það sem ég uppskar var blóðnasir úr báðum nösum, sár á nebbann og þ.a.l blóð út um allt. Mér leið ekki vel eftir þessi höfuðviðskipti og ákvað því að fara heim. Hélt í fyrstu að ég væri nefbrotinn en ég er nokkuð viss um að svo sé ekki. Strax frá fyrstu sekúndu þá blés andlitið á mér upp og lít ég núna eins og versti fílamaður!
Svo þegar heim var komið þá tók bara við að kæla, kæla og kæla meira svo að litli sæti og krúttlegi nebbinn minn yrði nú ekki á stærð við nebba versta boxara. Mikill þrýstingur í hausnum olli miklum höfðuverk sem ekki batnaði með "unaðstónum" Evróvision. ...ekki það að ég nenni að tala um þá mætu keppni.
Kem mér að því skemmtilega, spennuþrúgna og stressandi. Svör LHÍ voru send út í gær og á Erla því von á símtali frá múttunni sinni einhverntíma í dag þegar pósturinn Páll bankar uppá. Jebb, það er komið að þessu og spennan er óbærileg ...allir að krossa putta!
Þar sem að Erla er ekki ENN búin að skrifa um catwalk reynslu sína þá býst ég við að hún taki tvöfaldann pakka á þetta næst, þ.e.a.s segir ykkur hvort hún sé orðinn nemi í grafískri hönnun og reynslusögu módelsins.
Ég er hættur að monta mig á veðrinu sem er hérna og verður vonandi áfram. Þannig er mál með vexti að við sátum úti í garði í gær að spila og ég snéri bakinu í sólina og svo tveim timum seinna þegar ég fór inn var ég bleikari en Pink Panther! ...já hakan alveg í gólfinu, fólkið heima er örugglega það hissa! Þar sem að það var heilagur dagur hérna í gær þá var ekki hægt að kaupa aloa vera gel þannig að ég var að drepast á öxlunum í gær og var eins og Rocky Bilboa áður en hann stigur í hringinn á góðum degi með bautt handklæði um axlirnar á mér! Þar sem að maður er búinn að vera að sóla sig svona af og til hérna þá hélt maður að húðin væri farin að venjast eitthvað þar sem maður er nú alveg búinn að taka smá lit ...en neinei Einars syndromið það lét ekki á sér kræla og maður fékk að vera Burn victim eins og svo oft áður! Það fyrsta sem að verður gert í næstu búðarferð er að kaupa sólarvörn og Aloa Vera gel, takk fyrir!
Já þetta er einn og sami maðurinn í dag, allavega eru axlirnar sláandi líkar!
Annars er voðalega lítið að frétta af okkur héðan, lífið bara gengur sinn vanagang og hugsar vel um okkur! Prófin að nálgast en ég fer í mitt fyrsta þann 29. maí! Vanalega er ég í miðjum prófum núna eins og félagar mínir í háskólanum eru að finna fyrir en hérna byrjaði skólinn ekki fyrr en 1. febrúar þannig að ég prófin eru heldur seinna. Ég verð nú að játa það að það er mjög erfitt að sitja inni í þessu góða veðri að lesa en þá verður maður bara að grípa á það ráð að brenna svona svakalega og þá verður maður að vera inni! Annars getur maður nú ekki kvartað, maður er búinn að vera í kvartbuxum í tvær vikur!
Vá, ef ég man rétt þá var fyrsta setningin mín að ég væri hættur að monta mig á þessu veðri hérna og svo er ég ekki búinn að tala um neitt annað en eitthvað helvítis veður. Ætli það sé samt ekki bara merki um það hversu lítið ég hef að segja og sé bara að blogga til þess að blogga!
Annars í þessum skrifuðu orðum þá er Erla perla að æfa sig að labba runway (sýningarpallinn). Jebb konan er orðin módel og ég er umbinn! Nei án alls djóks þá er hún að fara að taka þátt í einhverri sýningu og ég bara veit minna en ekki neitt um þetta þannig að ég get ekki sagt ykkur mikið frá þessu. Ekki það að ég sé ekki með puttann á púlsinum heldur vissi Erla ekki neitt hverju hún var að lofa sér útí! Það verður virkilega gaman að sjá hvernig þetta kemur út í kvöld! Eigum við ekki að vera geggjað sniðug og segja að Erla bloggi á morgun um atburði dagsins og komandi kvölds ...svona smá pressa á stelpuna til að hún bloggi!
Manchester datt út úr meistaradeildinni á miðvikudaginn og líklega lélegasti leikurinn þeirra á þessu tímabili! ...nenni ekki eyða fleiri orðum í það! Vona bara að Chelsea vinni á morgun svo að Manchester geti nú tryggt sér titilinn á Stanford Bridge, en ég yrði nú ekkert rosalega sár ef að Chelsea tapar stigum á morgun og United verður meistari.
Nú er hausinn á mér orðinn tómur að það hringlar í honum!
Reyndar eitt, ég er að verða ansi spenntur fyrir Íslandsmótinu heima þar sem ég ber miklar væntinar til míns félags! Kíkji á hverjum morgni inn á fotbolta.net til að sjá spá þjálfara og fyrirliða í þremur efstu deildunum. Er viss um að þetta verður skemmtilegt fótboltasumar og þar sem Steini og Joffi eru að spila í 2. deildinni þá á maður eftir að fylgjast enn meira með henni í ár. Bæði ÍR og Afturelding ættu eins og staðan er í dag að vera að fara að berjast um að komast upp í 1. deildina. Reyndar voru miklar væntingar gerðar til þessara beggja liða í fyrra en þau soguðust niður í fallbaráttuna en ég hef enga trú á öðru en að mínir mætu vinir verði á efri helmingi töflunar. Ég bíð samt spenntastur eftir fyrsta leik Fjölnismanna sem verður gegn nýliðum Reynis og kemur ekkert annað en sigur þar til greina enda er stefnan sett upp og ekkert annað!
Bara að láta ykkur vita þá verður þetta stutt blogg OK people ..vona að þið séuð ekki vonsvikin. Ég hef bara ekkert svo mikið að segja eiginlega, jahh svona er lífið!
En hún Karen litla Daðaðadóttir átti afmæli seinasta laugardag þann 28. apríl nákvæmlega og bara til lukku með það snúllan mín, orðin tuttugu ooooog eins stelpan !:D Svo á hann afi gamli Garðar afmæli í dag og er hann ekki meira né minna en 65 ára kallinn og langar mig að óska honum líka til lukku með daginn en ég efa það að hann lesi bloggið mjög oft;) Ég sendi honum samt sms áðan, vonandi að það hafi borist yfir hafið svo að hann viti nú að ég hafi ekki gleymt honum!!:D ...jæja fleiri óskir, hann Garðar Darri litli frændi fermdist á sunnudadaginn og til hamingju með það vona að dagurinn hafi verið góður! Lifðu í lukku en ekki í krukku ;) Jæja þá er óskastundinni lokið í bili....
Núna er ég í viku fríi í skólanum vegna þess að ALLIR í skólanum eru núna í Róm (ok, ekki allir-meira svona "allir" eins og þegar maður var lítill og vildi láta vorkenna sér!) Jamm ég ákvað að fara ekki vegna peninga leysis, svona betra að eiga fyrir leigu og mat heldur en skemmtun á ÍTALÍU ....OHHHHHHH hvað maður er orðinn gamall, þessi setning hljómaði bara einum of illa eiginlega úfff :( næst er það bara göngugrind og gervitennur!! ..en allavega þá er ég bara í fríi, hef í rauninni ekki neitt að gera, sef bara lengi og nýt þess að hafa 50 sjónvarpsstöðvar ;) ..ég þarf reyndar að klára nokkur verkefni í ljósmyndun en ég meina það liggur ekkert á því eða hvað? Niihhh..
Ekkert merkilegt gerst neitt undanfarið hjá okkur, við Einar gerum eiginlega ekki neitt annað en að sóla okkur í góða veðrinu sem er alveg að gera okkur brjáluð....NOT....hehe við liggjum yfirleitt alltaf út í garði á teppi og leysum Sudoku gátur og söfnum brúnku og freknum! Hljómar ekki illa neitt, alls ekki!
Jamm við erum semsagt alveg á sprellandi lífi og ótrúlega óspenna í þessu augnabliki, kannski að Einar hafi frá einhverju spennandi að segja, kannski frá fótboltaleiknum sem hann er að horfa á núna?? Hvað veit maður ég er allavega aaaalveg tóm í mínu höfði núna ...bíð bara spennt eftir því að fá svar frá Listaháskólanum, allir að krossa putta fyrir mig:D HEY eitt fyndið sem ég komst að þegar ég skrapp heim ..við vorum 5 úr gamla bekknum mínum á listabrautinni í BHS sem sóttum ÖLL um í grafíska hönnun, mjög fyndið og mjööög spennandi og þvílík tilviljun því það er 1 ár síðan við kláruðum brautina og við tölumst ekkert saman!! jamms þetta var frétt vikunar, kannski að maður nenni að henda inn bloggi einhverntíman í næstu viku ;)
Farin að horfa á einhverja svaaakalega lélega klappstýrumynd og þetta er sko EKKI Bring it On (hún er meistaraverk hliðiná þessari mynd!!!)
Ég verð nú bara að byrja á svakalegum fréttum, reyndar eru þetta gamlar fréttir en ég var fyrst núna að sjá þetta og þetta eru svakalegar fréttir fyrir mig.
Ég var bara eitthvað að hangsa á netinu þegar ég rakst á þetta:
tjekkið á aðalbandinu á sunnudeginum!!! ....unglingurinn í sjálfum mér fékk vægt taugaáfall, enda vita flestir sem að þekktu mig á unglingsárunum að ég hlustaði varla á annað en Zach og félaga.
Jafnvel þegar ég er að hlusta á útvarpið og þeir eru spilaðir þá færist svona nett bros fram á varirnar og höndin læðist í átt að útvarpinu til að hækka örlítið. Ég er ekki frá því að ég skelli þeim bara á fóninn í tilefni þessa.
Þeir hafa semsagt tekið ákvörðun eftir að hafa verið hættir í 5 ár eða eitthvað að spila á þessari tónleikahátið. Fyrst átti þetta einungis að verða þessir einu tónleikar en þeir hafa svo bókað sig á fleiri í kjölfarið. Vonandi að þeir verði enn fleiri og komi jafnvel til Evrópu svo ég geti svalað þorsta unglingsáranna.
En fyrir utan RATM þá er line-up ið á þessari hátíð bara rugl og staðsetningin geggjuð. Maður væri alveg til í að kíkja í sólina í Kaliforníu og hlusta á fagra tóna þess á milli.
Að öðru
Mín ástkæra systir á afmæli í dag og vil ég hér með óska henni innilega til hamingju með daginn. Stelpan orðin stór, 33 ára gömul. Til gamans að geta þá var það einmitt hún sem að kynnti mér fyrir RATM á sínum tíma, þannig að brosið í morgun er henni algjörlega að þakka. Svo ég sé nú ekki að halla á einn né neinn með því að fá kveðjur á netið þá átti Nonni bróðir og pabbi einnig afmæli fyrir skömmu eða þann 8. og 14. apríl og vil ég óska þeim einnig innilega til hamingju með dagana þeirra. Það er alveg skuggalegt hvað þeir eru að verða gamlir eða 37 og 57 ára, ætli maður sé þá ekki að eldast líka.
Nonni bróðir í prófum þessa dagana þar sem hann er í viðbótarnámi í HR. Gangi þér sem allra best í baráttunni og ef þig vantar einhverja hjálp þá get ég kannski reynt að leiðbeina þér eitthvað í gegnum skype. Ég hef samt nokkurn grun um að eftir prófið í gær hafi nokkrir kaldir fengið að renna niður, svona alla vega miðað við síðasta komment frá þér :) ....virkilega gaman af því.
Fjölskyldan annars að flytja í þessum skrifuðu orðum úr Hamravíkinni í Heiðarhjalla í Kóparvogi og vonandi að flutningarnir séu að ganga vel, mútta var alla vega þónokkuð stressuð í gær þegar ég spjallaði við hana. Mikil vinna að baki hjá gamla settinu og ég er ekki frá því að þau séu búin með öll batterý líkamans og þurfa að komast sem lengst í burtu frá amstri Reykjarvíkur í hita og sólskin til að hlaða þau upp að nýju. ....svona sem dæmi til Køben, en það er einmitt spáð 20° á mánudaginn.
þetta er komið gott í bili og nú bíður bara sturta og lærdómur
mvh, Loner
p.s. Steini er alltaf að spyrja mig hvenær skipulögð koma til Íslands sé. Ef ég vissi það Steini minn þá væri ég líklega búinn að svara þér. Við ætlum nú að reyna að vera hérna eitthvað fram á sumarið og njóta okkar. Ætlum að reyna að fá bara vinnu hérna og hafa það gott, þannig að ætli það sé ekki svona í byrjun ágúst ef að allt gengur eftir.
p.s.s Nonni bro: Ég var næstum búinn að gleyma aftur að segja þér netfangið, það er: einarmarkus@gmail.com Held samt að ég hafi nú einhvern tímann sent þér póst svona bara til þess að þú vissir mailið mitt! Það væri virkilega gaman að fá send einhver smá brot af litlu ormunum.